ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Skuldug geitarækt forstjórans í Arnarnesi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:33 › 22. maí 2009

Stjórnendur Skipta hf., þeirra á meðal Brynjólfur Bjarnason forstjóri félagsins, hafa tapað nær öllum eignum sínum í Exista hf. Brynjólfur á sjálfur Lamba ehf. Skuldir einkahlutafélagsins gætu hæglega verið nálægt einum milljarði króna eftir bankahrunið á sama tíma og eignir þess eru að engu orðnar.

Meginhlutverk Lamba ehf. er sauðfjár- og geitarækt og kaup og sala á fasteignum og verðbréfum. „Lítill tími gefist í búskap,“ segir Brynjólfur.

Lambi, einkahlutafélag í eigu Brynjólfs Bjarnasonar, forstjóra Skipta, skuldaði 700 milljónir króna í árslok 2007. Skuldirnar gætu hæglega verið um eða yfir milljarður króna hafi þær verið í erlendum gjaldmiðlum. Á sama tíma eru eignir félagsins í Exista hf. orðnar nánast verðlausar.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.