ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Eignirnar til Tortola og húsið á konuna

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:30 › 15. maí 2009

Sigurður Valtýsson, forstjóri Exista, færði allan eignarhlut sinn í Exista til Yenvis Inc. á Tortola 11. september 2008, nokkrum vikum fyrir bankahrunið. Verðmæti bréfanna þá var 160 milljónir króna en þau eru nú hálfrar milljónar króna virði.

Sigurður vildi ekki svara spurningum blaðamanns þar sem spurningarnar vörðuðu persónulegar fjárreiður hans. Auk þess að færa hlutabréfin til Tortola afsalaði hann einbýlishúsi sínu að Iðalind 2 í Kópavogi til eiginkonu sinnar stuttu eftir bankahrunið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?