Eggert Páll Ólason, yfirlögfræðingur Landsbankans, sem þekktur varð sem vinur einkabílsins á sínum tíma líður nú fyrir mistök Lárusar Finnbogasonar. Samkvæmt heimildum DV hafði Lárus Finnbogason, formaður skilanefndar Landsbankans, samband við Arnar Bjarnason og bauð honum 2,6 prósenta hlut bankan í BYR.
Mikið hefur verið fjallað um sölu skilanefndar Landsbankans á 2,6 prósenta hlut sínum í BYR. Fyrir söluna átti Landsbankinn 7,6 prósenta hlut. Samkvæmt reglum um stofnfjáreigendur geta þeir sem eiga stofnfé umfram fimm prósent ekki nýtt atkæðisrétt umfram það. Því brá Landsbankinn á það ráð að selja félaginu Reykjavík Invest 2,6 prósenta hlut.
Samkvæmt heimildum DV hafði Lárus Finnbogason, formaður skilanefndar Landsbankans, samband við Arnar Bjarnason og bauð honum 2,6 prósenta hlut bankan í BYR. Arnar er sem kunnugt í framboði með Sveini Margeirssyni til stjórnar BYR.
Sveinn Margeirsson og Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans, hafa báðir þrætt fyrir það að skilanefndin sé að beita sér í málinu. DV birti hins vegar tölvupóst frá Sveini í dag sem sýnir hið gagnstæða.
Salan á 2,6 prósenta hlutunum gekk síðan til baka eftir fund skilanefndarinnar á mánudagskvöld. Hefur Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans, sagt að Eggert Páll Ólason,
yfirlögmaður Landsbankans, hafi skrifað undir framsalsbeiðni og ekki haft samþykki skilanefndarinnar.
Viðbrögð stjórnvalda vegna málsins hafa vakið nokkra athygli. Svo virðist sem enginn vilji bera ábyrgð á gjörðum skilanefndarinnar. Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að málinu sé lokið.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á mánudag að ef eitthvað væri rangt við söluna myndi Fjármálaeftirlitið skoða það. Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, segist ekki hafa rætt við nefndina enda hafi hann ekki beint eftirlit með skilanefndinni.
Eggert Páll Ólason sem þekktur varð sem vinur einkabílsins á sínum tíma hafi líður nú fyrir mistök Lárusar Finnbogasonar. Eins og áður var neft hafði Lárus frumkvæði að því að bjóða Arnari Bjarnasyni 2,6 prósenta hlut skilanefndarinnar í BYR.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
