Innbrotsþjófur í svefnherbergi ólétts ritstjóra

Elín á að eiga sitt fyrsta barn eftir tvær vikur og er illa brugðið eftir innbrotið í morgun.

Elín á að eiga sitt fyrsta barn eftir tvær vikur og er illa brugðið eftir innbrotið í morgun.

Miðvikudagur 8. apríl 2009 kl 14:16

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Brotist var inn hjá Elínu Arnar, ritstjóra Vikunnar, rétt eftir klukkan átta í morgun. Elín vaknaði við að innbrotsþjófur stóð inni í svefnherberginu hennar. Elín á að eiga sitt fyrsta barn eftir tvær vikur og var að vonum illa brugðið.

„Ég bý í timburhúsi miðsvæðis í Reykjavík og það er mjög hljóðbært í því. Ég er á miðhæðinni og þegar nágrannar mínir ganga stigann upp á efri hæðina þá heyrist stundum eins og þeir séu inni hjá mér.
Í morgun heyrði ég einhvern skarkala og hélt að nágrannarnir væru þar á ferð, reyndar fullmikil læti í þeim til að mér þætti það eðlilegt. Augnabliki síðar kom maður inn í svefnherbergið til mín. Hann var frekar langur og slánalegur í hettupeysu í felulitum. Hann snerist á hæli þegar hann sá að ég var vakandi og lokaði dyrunum á eftir sér. Ég vafði utan um mig sænginni, fór fram og athugaði hvort hann sé enn í íbúðinni en þar var enginn. Síðan opnaði ég útidyrnar og fyrir utan stóðu tveir miðaldra menn og sögðust vera að leita að leigubíl, höfðu engan séð fara inn eða út, sem mér fannst mjög skrýtið,“ segir Elín.

Þjófurinn sturtaði úr veski Elínar en stal ekki neinu nema myndavél sem hún keypti dýrum dómum fyrir nokkrum árum. Þá tók þjófurinn hús- og bíllykla Elínar og yfirgaf heimili hennar á bílnum hennar, Toyota Aygo.

„Ég hringdi í lögregluna sem var mjög snögg af stað og hóf strax leit að bílnum mínum. Hann fannst um klukkutíma seinna við Hallveigarstíg, hafði verið lagt í stæði fyrir fatlaða þar og var myndavélina í bílnum,“ segir Elín en rannsóknarlögreglan er með innbrotið til rannsóknar.

Elín á von á fyrsta barni sínu eftir tvær vikur og líður alls ekki vel á heimili sínu eftir atburði morgunsins.

„Ég er komin 37 vikur á leið og mér finnst hræðileg tilhugsun að þurfa að koma með varnarlausan einstakling heim eftir tvær vikur inn í þessa íbúð. Ég ætla að auka öryggið í íbúðinni en mér líður ekki vel þarna akkúrat núna,“ segir Elín sem vill brýna fyrir fólki að athuga lása á heimilum sínum.

„Útihurðin mín er glæný og lásinn einnig en það tók þjófinn örskamma stund, ábyggilega bara nokkrar sekúndur, að spenna lásinn upp. Ég þarf að endurskoða alla lása hjá mér og mér finnst að fólk ætti að gera slíkt hið sama í ljósi versnandi ástands í þjóðfélaginu.“


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 23:00

Nektarbúgarður fyrir vinninginn

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 22:05

Stefnuskrár marklaus plögg

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 22:00

Ók sprengjubíl á bílalest

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 21:00

Ölvaður við ökukennslu

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 20:53

Bresk bæjarfélög fá loks góðar fréttir

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 20:03

500 ökumenn stöðvaðir á einu kvöldi

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 20:00

Enginn fékk 15 milljónirnar

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 19:55

Fengu McDonalds-skilti í gegnum bílinn

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 18:48

Björgólfur vissi af styrknum

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 18:37

„VG vill refsa barnafólki“

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 18:22

Atkvæði þitt kostar ríkið 900 krónur

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 17:35

Öl og skot með matnum

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 17:10

Stóri bróðir Sölva lést í eldsvoða

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 17:08

Flugvél tók hús í tvennt

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 15:43

Bubbi: „Ekki kjósa vinstristjórn Jóhönnu“

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 15:28

300 kannabisplöntur í Breiðholtinu

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 15:24

Össur boðar stórfelldar sameiningar

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 14:50

Lét lífið vegna refsingar kennara

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 14:45

Guðrún Jónsdóttir fékk félagshyggjuverðlaunin

Laugardagur 18. apríl 2009 kl 14:08

Eyðileggja orðstír heillar þjóðar