Ögmundur Jónasson undrast kæru erlendra lyfjarisa og segir þá ekki bera hag íslenskra borgara fyrir brjósti. Mynd: DV
Erlend lyfjafyrirtæki hafa kært íslenska ríkið til eftirlitsstofnunar EFTA vegna nýrrar reglugerðar um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga við kaup á lyfjum. Telja lyfjafyrirtækin að með því að leita hagkvæmustu kosta í lyfjakaupum sé íslenska ríkið að brjóta gegn markaðslögmálum Evrópusambandsins. Þannig sé innlendum lyfjaframleiðendum gert hærra undir höfðu en þeim sem flytja lyf inn á íslenskan markað.
Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra gerði kæruna að umtalsefni á fundi með fulltrúm heilbrigðisstétta á Hótel Nordica fyrr í dag.
Ögmundur segir að setning reglugerðarinnar hafi verið eitt af sínum fyrstu verkum sem heilbrigðisráðherra. Markmið hennar sé að lækka lyfjakostnað upp á um 650 milljónir króna, þó þannig að sparnaðurinn komi ekki niður á sjúklingum heldur verði kostnaðarþátttöku ríkis og sjúklinga beint í hagkvæman farveg. Þannig taka niðurgreiðslurnar til ódýrra lyfja í tveimur lyfjaflokkum þar sem völ er á sambærilegri meðferð. Munurinn á lyfjunum felst því fyrst og fremst í mismunandi verðlagi.
Lyfjafyrirtæki sem flytja lyf til Íslands gera athugasemdir við reglugerðina og segja hana stríða gegn lögmálum markaðarins. Þannig sé íslenska ríkið að útiloka fjölda innfluttra lyfja af markaði með því að halda kostnaði niðri.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
