Vefritið Deiglan fullyrðir að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hafi ekki sótt leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins (NATO) vegna vankunnáttu í ensku. Hún hafi óskað eftir því að fá að ávarpa fundinn á íslensku þar sem enskukunnátta hennar væri takmörkuð. Því hafi verið hafnað.
Deiglan segist hafa fyrir þessu áreiðanlegar heimildir úr tveimur ráðuneytum. „Þetta er argasta lygi,“ segir Hrannar B. Arnarson, aðstoðarmaður forstætisráðherra, í samtali við DV.
Hann segir að Jóhanna hafi ætlað sér að fara á fundinn. „Hins vegar var dagskráin í þinginu og hér heima þannig að það var ekki verjandi að hún færi,“ segir Hrannar.
Þegar Hrannar var spurður hvort það væri verjandi að Össur færi svaraði hann því játandi. „Já, hann hefði hvort sem er farið á utanríkisfundinn,“ segir hann.
Aðspurður um hvort Jóhanna sé fær um að tala ensku á svona fundi segir Hrannar að hann „treysti henni í hvað sem er, hvenær sem er.“





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir