ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Kúlulánskóngur kaupir verðbréfafyrirtæki

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:04 › 30. apríl 2009
Frosti kom hlut sínum í Kaupþingi undir einkahlutafélag sitt FRR ehf. í sömu viku og bankinn var þjóðnýttur.

Frosti kom hlut sínum í Kaupþingi undir einkahlutafélag sitt FRR ehf. í sömu viku og bankinn var þjóðnýttur.

Þrír fyrrum starfsmenn Kaupþings banka hafa keypt verðbréfafyrirtækið NordVest verðbréf hf., sem áður var í eigu SPM (Sparisjóðs Mýrarsýslu), en formlegri starfsemi í félaginu var hætt í september síðastliðnum. Þetta kemur fram í frétt hjá Pressunni.

Um er að ræða þrjá fyrrum háttsetta framkvæmdastjóra Kaupþings. DV fjallaði um einn þeirra síðasta haust þegar Kaupþing var yfirtekið. Frosti Reyr Rúnarsson, sem var forstöðumaður verðbréfamiðlunar Kaupþings, er einn þeirra sem keypt hefur NordVest verðbréf. Frosti stofnaði einkahlutafélagið FRR ehf. í sömu viku og Kaupþing var þjóðnýtt.

Ekki er vitað hvað Frosti átti stóran hlut í Kaupþingi. Hinir tveir sem koma að kaupunum eru Hannes Frímann Hrólfsson, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóra fjárstýringar og markaðsviðskipta og Þorlákur Runólfsson, fyrrverandi forstöðumaður einkabankaþjónustu.

Pressan greinir auk þess frá því að þeir félagar hafi fengið til liðs við sig hóp fjárfesta. Má þar nefna Helga S. Guðmundsson sem sat í stjórn Landsbankans á sínum tíma. Auk þess er Gunnlaugur Sigmundsson, faðir Sigmundar Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins einn þeirra sem kemur að félaginu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?