ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Kennitöluflakk í boði Kaupþings

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:26 › 3. apríl 2009
Skipt um kennitölu. Kaupþing hefur stofnað nýtt félag utan um rekstur Pennans og skipt um kennitölu á fyrirtækinu. Kröfuhafar Pennans eru reiðir yfir þessu vegna þess nú þurfa þeir að sækja útistundandi kröfur inni í þrotabú Pennans. Birgi segir að með þessu sé Kaupþing að setja birgja út á „kaldan klaka.“

Skipt um kennitölu. Kaupþing hefur stofnað nýtt félag utan um rekstur Pennans og skipt um kennitölu á fyrirtækinu. Kröfuhafar Pennans eru reiðir yfir þessu vegna þess nú þurfa þeir að sækja útistundandi kröfur inni í þrotabú Pennans. Birgi segir að með þessu sé Kaupþing að setja birgja út á „kaldan klaka.“ Mynd DV

Birgjar Pennans eru ævareiðir yfir því að Kaupþing-banki hafi stofnað nýtt félag utan um rekstur Pennans á Íslandi og skipt um kennitölu á félaginu því það geri þeim illmögulegt að fá kröfur sínar við fyrirtækið greiddar.

Kaupþing-banki tók yfir rekstur Pennans þann 20. mars síðastliðinn en bankinn er stærsti kröfuhafi fyrirtækisins. Bankinn úrskurðaði Pennann svo gjaldþrota síðastliðinn fimmtudag en mun halda áfram að reka verslanir Pennans þar til heppilegur kaupandi finnst.

„Þjófnaður“ og „kennitölusvindl“ segir birgi
Birgi sem á útistandandi kröfu hjá Pennanum frá því í byrjun ársins segir að sér þyki það afar miður að bankinn hafi skipt um kennitölu. „Ég hafði samband við gjaldkera Pennans á fimmtudag til þess að fá kröfuna greidda en fékk þá þau svör að fyrirtækið væri komið í þrot, að búið væri að skipta um kennitölu og því fengi ég kröfuna ekki greidda,“ segir birginn, sem vill ekki láta nafn síns getið.

Birginn segir að nú þurfi hann að gera kröfu í þrotabú Pennans jafnvel þó að Penninn haldi áfram rekstri á nýrri kennitölu. „Krafan mín er á gömlu kennitöluna. En ég get gengið inn í verslanir Pennans og séð vörurnar mínar þar og mun Penninn græða á því að selja þær en ég veit að ég mun aldrei fá þær borgaðar. Þetta er ekkert annað en þjófnaður; þetta er bara kennitölusvindl. Það sem mér svíður mest er að það er Kaupþing banki sem er að gera þetta, ríkisbankinn,“ segir birginn, sem átt hefur í viðskiptum við Pennann í mörg ár.

Krafan verðlaus
Birginn segir að það sem Kaupþing sé að gera með þessu sé að skilja skuldir Pennans eftir á gömlu kennitölunni og svo haldi rekstur verslunarinnar áfram eins og ekkert hafi í skorist. Með breytingunni á kennitölu Pennans á birginn nú kröfu í þrotabú Pennans en ekki nýja félagið sem stofnað hefur utan um rekstur hans. Hann segist hins vegar ekki vera vongóður um að hann muni fá kröfuna greidda úr þrotabúinu þar sem rekstrarstaða fyrirtækisins sé afar slæm og það hafi staðið í tapfrekri útrás í útlöndum á liðnum árum. „Það fæst almennt ekkert upp í kröfur í svona málum og væntanlega er eiginfjárstaða fyrirtækisins neikvæð,“ segir birginn og bætir því við að skuldin sem hann átti hjá Pennanum sé að öllum líkindum tapað fé. Að hans sögn eiga margir birgjar sem eru stærri en hann útistandandi kröfur í þrotabú Pennans upp á tugmilljónir króna.

Haft verður samband við kröfuhafa
Helgi Júlíusson, forstjóri Pennans, segir að félagið hafi verið lýst gjaldþrota síðastliðinn fimmtudag og að Kaupþing hafi stofnað nýtt félag utan um rekstur fyrirtækisins á Íslandi. En bankinn tók til sín allar rekstrartengdar eignir Pennans og setti þær inn í nýja félagið. Nýja félagið tók til starfa síðastliðinn föstudag. Forstjórinn segir að félagið hafi verið lýst gjaldþrota því að menn haf metið það sem svo að þetta væri eina leiðin til að tryggja rekstrargrundvöll Pennans og störf starfsfólksins. „Þetta er ekki gert til þess að svína á neinum,“ segir Helgi.
Forstjórinn segir að það sé ómögulegt að segja hvernig gengið verði frá skuldum við kröfuhafa gamla félagsins en segir að kröfur þeirra hafi verið skildar eftir inni í gamla félaginu. „Við erum að hafa samband við okkar birgja og munum í kjölfarið setjast niður með aðilum til þess að róa menn og ná farsælli niðurstöðu í þessum málum,“ segir Helgi. Ljóst er hins vegar að færsla reksturs Pennans yfir á nýja kennitölu mun gera það að verkum að kröfuhafar gamla rekstrarfélagsins munu eiga í meiri erfiðleikum en ella að fá útistandandi kröfur sínar greiddar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?