Steinunn Valdís gat ekki sagt já eða neit við því hvort hún hafi þegið styrki frá Baugi eða FL Group.
Frambjóðendur í prófkjörum stjórnmálaflokkanna fengu milljónastyrki frá stórfyrirtækjum á borð við Baug og FL Group árið 2006, samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2.
Fram kom í frétt stöðvarinnar í gær að einstakir frambjóðendur hefðu þegið allt að tvær milljónir króna í styrki.
Þau Guðlaugur Þór Þórðarson, Illugi Gunnarsson og Guðfinna Bjarnadóttir, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Helgi Hjörvar og Steinunn Valdís Óskarsdóttir, frambjóðendur Samfylkingarinnar, voru ásamt framsóknarmanninum fyrrverandi Birni Inga Hrafnssyni nefnd í kvöldfréttum Stöðvar 2 og því haldið fram að þau hefðu þegið styrki frá ofangreindum stórfyrirtækjum í kosningabaráttu sinni árið 2006.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sem skipar fjórða sæti í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir Samfylkinguna, gat ekki svarað því, í samtali við DV, hvort hún hefði fengið styrki frá Baugi eða FL Group og bar því fyrir sig að hún hefði ekki séð kvöldfréttir Stöðvar 2.
„Ég hef ekki séð fréttina þannig að ég veit ekkert um hvaða frétt þú ert að tala en það sem ég get sagt er að það mun ekki standa á mér að opna bókhald mitt varðandi prófkjör ef aðrir gera það og ef flokkarnir sammælast um það. Þá geri ég það að sjálfsögðu líka. Ég skilaði öllu mínu inn til skattsins á sínum tíma, bæði fylgigöngum, bókhaldsgögnum og öllu slíku þannig að það er þá bara mitt svar við þessu,“ segir Steinunn Valdís.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
