ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Guðlaugur: Styrkir ekki háir árið 2006

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:56 › 22. apríl 2009
Guðlaugur Þór Þórðarson segir 4 milljóna króna styrki fyrirtækja ekki hafa verið háa árið 2006.

Guðlaugur Þór Þórðarson segir 4 milljóna króna styrki fyrirtækja ekki hafa verið háa árið 2006.

Guðlaugur Þór Þórðarson staðfesti á Borgarafundi RÚV í kvöld að hafa þegið fjórar milljónir frá FL-Group og Baug árið 2006 í aðdraganda kosninganna 2007. Spurður út í málið sagði hann 40 aðila hafa styrkt sig en sagðist aðeins reiðubúinn að leggja öll spil á borðin ef aðrir gerðu slíkt hið sama.

Guðlaugur vék sér undan því að svara því hvort sér þætti upphæð styrkjanna eðlileg og sagði að skoða yrði málið í samhengi við það sem tíðkaðist í því umhverfi sem var ríkjandi í þjóðfélaginu á þeim tíma. Annað umhverfi væri í dag. Í því umhverfi sem ríkti árið 2006 hafi þessir styrkir ekki þótt háar fjárhæðir.

Guðlaugur var spurður í hvaða stöðu hann væri sem stjórnmálamaður með ofurstyrki sem þessa á samviskunni. Hann sagði að hann yrði í nákvæmlega sömu stöðu og áður, að hann myndi halda áfram að gera það sem væri rétt.

Baulað var á Guðlaug Þór eftir þau svör sín.

Hann sagðist halda oddvitasæti sínu fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavíkurkjördæmi suður.

Guðlaugur sagðist aldrei hafa hyglt neinu fyrirtæki vegna styrkjanna og myndi aldrei gera.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?