ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Milljónastyrkir Baugs og FL Group til stjórnmálamanna

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:44 › 21. apríl 2009
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrum borgarstjóri, er ein þeirra sem fékk styrk frá Baugi og FL Group samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrum borgarstjóri, er ein þeirra sem fékk styrk frá Baugi og FL Group samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2. Bragi Þór Jósefsson

Stórfyrirtæki á borð við Baug og FL Group styrktu frambjóðendur í prófkjörum stjórnmálaflokkanna árið 2006 um milljónir króna samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 kom fram að einstakir frambjóðendur þáðu allt að tvær milljónir króna í styrk.

Þeir sem háðu prófkjörsbaráttu eyddu allt frá nokkrum tugum þúsunda, upp í átta milljónum í prófkjörsslaginn, samkvæmt upplýsingum sem fréttastofa Stöðvar 2 hefur aflað sér hjá þingmönnum. Aðeins tæpur helmingur þingmanna fékkst til að upplýsa fréttastofu Stöðvar 2 um kostnað vegna prófkjara, þegar eftir því var leitað, og enginn þingmaður vildi gefa upp hvort hann eða hún hefði fengið styrk upp á meira en hálfa milljón frá einstökum lögaðila.

Sjálfstæðisþingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson, Illugi Gunnarsson og Guðfinna Bjarnadóttir, Samfylkingarfólkið Helgi Hjörvar og Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Framsóknarmaðurinn fyrrverandi Björn Ingi Hrafnsson eru meðal þeirra sem hlutu styrk frá Baugi og FL Group samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2. Enginn af ofangreindum einstaklingum hefur viljað staðfesta að hafa þegið slíkan styrk.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?