„Atli Gíslason, þingmaður vinstri-grænna, nauðgaði vændisfrumvarpi sínu út úr allsherjarnefnd og í gegnum þingið á lokadegi þess. Í fyrra tók hann viðamiklar breytingar á almennum hegningarlögum í gislingu undir þinglok með því að hengja þessi vændisákvæði á það frumvarp.“
Þetta segir Björn Bjarnason, fráfarandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í nýrri færslu á heimasíðu sinni. Björn gerir þar upp síðustu vikur sínar á þingi. Um vændisfrumvarpið svokallaða segir Björn að hann hafi verið einn þriggja þingmanna sem hafi greitt atkvæði gegn frumvarpinu. Hann segist taka undir þau sjónarmið Jóns Þórs Ólasonar, kennara í refsirétti við Háskóla Íslands, að frumvarpið sé illa unnið og ígrundað.
Björn kemur víða við í færslu sinni og skýtur meðal annars föstum skotum að núverandi stjórnarflokkum; sér í lagi Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra:
„Stjórnartími Jóhönnu hefur einkennst af einstefnu og yfirgangi. Hún komst upp með að breyta lögum um Seðlabanka Íslands, ýta þremur seðlabankastjórum til hliðar og ráða norskan mann sem seðlabankastjóra á hæpnum lögfræðilegum grunni, svo að ekki sé meira sagt. Frá þeim tíma hefur stöðugt fjarað undan íslensku krónunni.
Full ástæða er fyrir íslensku þjóðina að kvíða því, sem í vændum er, ef Jóhanna heldur áfram sem forsætisráðherra að kosningum loknum með Steingrím J. Sigfússon sem fjármálaráðherra sér við hlið. Hvorugt þeirra aðhyllist stjórnmálastefnu, sem mótar skynsamlega leið út úr þeim vanda, sem við er að glíma.
Þvermóðska Jóhönnu Sigurðardóttur gerði hana að forsætisráðherra. Samfylkingarfólki þótti eina leiðin til að draga úr líkum á því, að hún beitti sér fyrir óróa og klofningi í þeirra röðum, að „sparka henni upp á við“ eins og sagt er og láta hana sitja með lokaábyrgðina á eigin herðum. Steingrímur J. liggur síðan ekki á þeirri skoðun sinni, að hann viti í raun allt best og þar með einnig hvernig eigi að taka á málum, Jóhanna átti sig ekki á hinum flóknu viðfangsefnum. Hún þiggi ráð um þau frá sér," ritar Björn en hérmá lesa færsluna í heild sinni.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
