Náin eignatengsl eru milli Byrs sparisjóðs og MP banka og skyldra félaga sem átt hafa í viðskiptum með stofnfjárbréf í Byr sem Fjármálaeftirlitið hefur nú til rannsóknar. Stjórn Byrs ákvað í lok síðasta árs að veita félagi nátengdu MP banka 1,4 milljarða króna yfirdráttarlán gegn veði í stofnfjárbréfum sem MP banki hafði tekið af stjórnendum Byrs upp í skuld.
Hluthafar í Exeter Holdings ehf., sem eignast hefur stofnfjárhluti helstu stjórnenda Byrs sparisjóðsins, eru jafnframt stórir hluthafar í MP banka sem nýverið keypti netbanka SPRON. DV greindi frá því á þriðjudag að Fjármálaeftirlitið rannsaki nú viðskipti með stofnfjárbréf í Byr sparisjóði. Í bréfum og öðrum gögnum sem DV hefur undir höndum óskar FME eftir margvíslegum gögnum um viðskipti sex yfirmanna Byrs með stofnfjárhluti.
Eigendur Exeter Holding eru fleiri en Ágúst Sindri einn, en þetta félag er reist á öðru félagi sem áður hét Tæknisetrið Arkea ehf. og var í raun eignalaust samkvæmt ársreikningi félagsins á síðasta ári. Þar má nefna Dagrenningu ehf. í eigu Sigfúsar B. Ingimundssonar, Dexter Fjárfestingar ehf. í eigu Sigurðar Gísla Pálmasonar, Eindranga ehf. í eigu Þórðar Sverrissonar hjá Nýherja, Fari ehf. í eigu Jóns Pálmasonar og Vað ehf. í eigu Páls Kr. Pálssonar.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna