„Barnafólki verður refsa fyrir barneignirnar, komi skattastefna VG til framkvæmda,“ skrifar Helga Sigrún Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, í pistli á heimasíðu flokksins í dag.
Hún segir að á örlagastundu fyrir venjulegt fólk sé svarið sem þjóðin fái í andlitið frá Vinstri grænum að lækkun launa og hækkun skatta sé lausnin.
„Markið er sett við 300.000 kr mánaðarlaun. Formaður VG og núverandi fjármálaráðherra sér enga leið aðra en þessa áratugagömlu leið að horfa í tekjur fólks og klípa af þeim eins og kostur er. Ekkert tillit er tekið til skulda, fjölskyldustærðar eða greiðslubyrði fjölskyldnanna í landinu. Með því að horfa eingöngu til tekna (rétt eins og ekkert annað skipti máli!) verður þeim fjölskyldum sem eiga flest börnin og mestu skuldirnar refsað fyrir það. Það er nefnilega ekki sama hvort menn eiga eitt barn eða fjögur eða hvort menn búa í þriggja herbergja skuldlausri íbúð eða hvort fólk hefur þurft að stækka við sig vegna fleiri barna. Barnafólki verður þannig refsað fyrir barneignirnar, komi skattastefna VG til framkvæmda,“ segir í pistli Helgu.
Sjá pistlinn:





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi