Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður. Hefur gengið í endurnýjun lífdaga eftir tæplega fimm ára starf á Stöð 2. Mynd: Steingrímur Ari Jóhannsson
Í viðtali við Sölva Tryggvason fjölmiðlamann í helgarblaði DV segist hann hafa lært af foreldrum sínum að vera meðvitaður um þá sem minna mega sín. Þá segir hann frá sársaukafullum bróðurmissi.
„Ég vil meina að það hafi skilað sér aðeins inn í fréttamannsstarfið, að ég finn til með þeim eiga bágt. Ég segi ekki að ég geti sett mig í spor fólks sem hefur ekki til hnífs og skeiðar en þegar ég tek viðtöl við fólk sem hefur lent í erfiðum hlutum þá virkilega finn ég til með því. Það mótast bæði af þessu og hlutum sem ég hef lent í í í lífinu.“
Í því sambandi segir Sölvi frá því þegar eldri bróðir hans lést í eldsvoða aðeins tíu ára að aldri. „Það var gífurlega sorglegur atburður. Hann dó aðfaranótt aðfangadags árið 1982, þegar ég var fjögurra ára. Ég var náttúrlega rosalega lítill en ég man að við vorum mjög nánir eins og eðlilegt er hjá bræðrum. En ég man alltaf eftir þessum aðfangadagsmorgni þegar foreldrar mínir vöktu mig, mjög alvarleg, og sögðu: „Hann Högni litli er dáinn.“
Sölvi og Högni voru samfeðra og var stóri bróðir hans heima hjá mömmu sinni þegar slysið varð. Að sögn Sölva eru jólin alltaf svolítið sérstakur tími hjá fjölskyldunni vegna andláts Högna. „Svona hlutir hafa vitanlega áhrif á alla. Og svona lagað hefur áhrif á mann á einhverju leveli sem maður áttar sig kannski ekki á þrátt fyrir að börn séu fljót að jafna sig og halda áfram.“
Lesa má opinskátt viðtal við Sölva Tryggvason í helgarblaði DV sem komið er út. Þar geir Sölvi upp fortíðina, hótanirnar, bitur starfslok á Stöð 2 og persónulega lægð.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs