ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Stefnuskrár marklaus plögg

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:05 › 18. apríl 2009
Spyrja á um verkin, ekki loforðin segir Jónas.

Spyrja á um verkin, ekki loforðin segir Jónas.

  • Jónas Kristjánsson.

    Jónas Kristjánsson.

„Stefnuskrár eru að mestu marklausar. Engu skiptir, hvað menn segjast ætla að gera, heldur hvað þeir hafa veriða ð gera. Spyrjum um verkin, en ekki loforðin,“ skrifar Jónas Kristjánsson fyrrum ritstjóri á bloggsíðu sína í kvöld.

Jónas fjallar um að vissulega sé það lofsverð viðleitni fjölmiðlanna að bera saman stefnuskrár flokkanna og draga upp úr frambjóðendum skýr svör um stefnu, en marklaust að mati Jónasar.

„ Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið við völd áratugum saman. Við þurfum ekki að vita, hverju hann lofar. Okkur nægir að vita, hvað hann gerði. Mér finnst fjölmiðlar eigi að vara fólk við, þegar þeir fjalla um stefnur. Segja fólki í leiðinni, að þær séu léttvægar.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.