Össur Skarphéðinsson utanríkis og iðnaðarráðherra vill sameina ráðuneyti ráðuneyti iðnaðar, sjávarútvegs og landbúnaðar í einu ráðuneyti sem væri atvinnuráðuneyti. Þetta kom fram í máli hans í þættinum Kosningagrillið á útvarpi Sögu. Jafnframt vill hann færa eftirlit og vöktun auðlinda frá áðurnefndum ráðuneytum yfir til umhverfisráðuneytisins. Þetta er á meðal víðtækra sparnaðarhugmynda ráðherrans sem einnig vill renna saman dómsmálaráðuneytinu og samgönguráðuneytinu.
Össur nefndi einnig samruna ríkisfyrirtækja í hagræðingarskyni. Þannig rynnu Landhelgisgæslan og Varnarmálastofnun saman. Einnig vill hann sameina Tryggingastofnun og Vinnumálastofnun. Þá verði Siglingastofnun og Vegagerðin að einni stofnun. Össur sagði að þetta væri aðeins dæmi um það sem hann vill gera í sparnaðarskyni.
Össur boðar stórfelldar sameiningar
Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna