ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Ölvaður við ökukennslu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:00 › 18. apríl 2009
Ökukennari dæmdur fyrir að kenna á bifreið draugfullur.

Ökukennari dæmdur fyrir að kenna á bifreið draugfullur.

Ökukennari frá Salem í Bandaríkjunum hefur verið fundinn sekur um að hafa verið ölvaður við störf. Atvikið átti sér stað árið 2007. Hinn 53 ára Daniel Winsky var dæmdur í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi, sviptur ökuréttindum í ár og gert að sækja ökunámskeið. Þá verður hann að greiða ríflega 250 þúsund krónur í sekt.

Samkvæmt frétt dagblaðsins The Salem News er talið að þetta sé í fyrsta skipti sem farþegi í bifreið er sakfelldur fyrir ölvunarakstur. Winsky var með tvo nemendur í kennslubifreið sinni þegar hún var stöðvuð að lögreglu.

Það var starfsmaður matvöruverslunar sem sigaði lögreglunni á hann eftir að hann kom inn í búðina angandi af alkahóli og þvoglumæltur. Áhyggjur starfsmannsins hafi síðan aukist þegar hann horfði á eftir honum setjast inn í kennslubifreiðina.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.