Heppinn milljónamæringur, sem vann það sem samsvarar um 422 milljónum íslenskra króna í happdrætti í Flórída í Bandaríkjunum árið 2004, vill opna sinn eigin nektarbúgarð.
Tim Clements vildi snúa aftur sveitalífsins sem hann ólst upp við og fékk þá hugmyndina. Að sögn Clements og viðskiptafélaga hans David Jennings er búgarðurinn mátulega afskekktur svo fólk geti verið kviknakið.
Eina vandamálið er í Hernando-sýslu þar sem Clements keypti búgarðinn er lagt blátt bann við nekt á almannafæri. Hann lætur það þó ekki stöðva sig og vonast til að fá nauðsynleg leyfi fyrir öllu. Takist það ekki lokar hann búgarðinum fyrir almenning og hefur hann bara fyrir vini sína.
Á vefsíðu þeirra segir að klæðaburður sé valfrjáls en allir verði þó að vera í buxum og stígvélum þegar þeir fari á hestbak.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu