ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW

Lét lífið vegna refsingar kennara

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:50 › 18. apríl 2009
Shanno Khan lést í gær.

Shanno Khan lést í gær.

Ellefu ára indversk skólastúlka, Shanno Khan, lét lífið eftir að kennari hennar refsaði henni með því að láta hana standa úti í steikjandi hita í tvo tíma með múrstein á öxlunum. Ástæða refsingarinnar var að stúlkan gat ekki stafað enskt orð rétt.

Stúlkan fékk blóðnasir eftir veru sína úti í sterkri sólinni í New Dehli á miðvikudag. Hún var flutt á sjúkrahús og við komuna féll hún í dá samkvæmt fréttavef Skynews. Í gær lést stúlkan. Samkvæmt læknaskýrslum lést stúlkan af ofþreytu.

Lögreglan rannsakar nú málið og íhugar refsingu fyrir kennarann.

„Hún var heilbrigt barn. Ég kenni kennaranum um að hún er dáin. Við viljum að kennaranum og skólastjóranum verði refsað,“ segir faðir stúlkunnar í samtali við Hindustan Times.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.