ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Guðrún Jónsdóttir fékk félagshyggjuverðlaunin

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:45 › 18. apríl 2009
  • Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, var verðlaunuð í gær fyrir framúrskarandi störf.

    Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, var verðlaunuð í gær fyrir framúrskarandi störf.

  • Félagshyggjuverðlaun Ungra jafnaðarmanna voru afhent í gær.

    Félagshyggjuverðlaun Ungra jafnaðarmanna voru afhent í gær.

Félagshyggjuverðlaun Ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar, voru veitt í gær. Verðlaunin hlutu Akranesdeild Rauðakrossins og Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, en þau voru heiðruð fyrir óeigingjarnt starf í þágu þeirra sem minna mega sín á erfiðum tímum.

Guðrún Jónsdóttir var heiðruð fyrir störf hjá Stígamótum og hefur hjálpað fjölda fólks eins og kemur fram í tilkynningu frá Ungum jafnaðarmönnum.

„Guðrún hefur um árabil barist gegn kynferðisofbeldi og hlúð að þeim sem fyrir því verða. Hún hefur verið í fararbroddi þeirra sem vekja athygli á og sporna gegn slíku ofbeldi og tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi fyrir hönd Íslands. Þannig hefur Guðrún hjálpað fjölda fólks og vakið athygli á ofbeldi og grófu misrétti sem lengi fór hljótt.“

Akranesdeild Rauða krossins hlaut verðlaunin fyrir störf í þágu flóttafólks og innflytjenda. Samtökin hafa staðið fyrir ýmiss konar fræðslu og starfi fyrir innflytjendur og gert fólki kleift að hefja nýtt líf á öruggum stað.

Ungir jafnaðarmenn óska Akranesdeild Rauðakrossins og Guðrúnu Jónsdóttir til hamingju með verðlaunin og biðja þeim gæfu á komandi tímum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.