Hjónin Russell og Carolyn Janke lentu í heldur betur furðulegu atviki á ferð sinni um bæinn Window Rock í Arizona-ríki Bandaríkjanna í vikunni. Risavaxið McDonalds skilti fauk nefnilega um koll og lenti rakleiðis á jeppabifreið þeirra og gjöreyðilagði. Hjónin slösuðust illa í slysinu.
Janke-hjónin stoppuðu við McDonalds veitingastað í Window Rock á miðvikudaginn til að fá sér hádegismat. Mikill stormur var og þar sem hjónin sátu í jeppabifreið sinni á bílastæði veitingastaðarins fauk skiltið, sem eins og margir vita er risavaxið gult M, um koll og kramdi jeppann.
Voru þau flutt á sjúkrahús, Russel Janke var með meðvitund en hlaut stóran skurð á höfuðið, en eiginkona hans Carolyn rotaðist og brotnaði á hrygg og bringubeini. Þau eru 72 og 69 ára gömul.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung