ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Eyðileggja orðstír heillar þjóðar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:08 › 18. apríl 2009
  • Jón Gerald vandar Bakkabræðrum ekki kveðjurnar.

    Jón Gerald vandar Bakkabræðrum ekki kveðjurnar.

Jóni Geraldi Sullenberger blöskrar að Bakkabræður hyggjast taka yfir Exista og borga tvo aura fyrir hlutinn. Þegar gengið var sem hæst árið 2007 kostaði hluturinn um fjörutíu krónur. Jón segir græðgi þessara manna eyðileggja orðstír heillar þjóðar.

„Bakkabræður ætla ekki að borga þetta sjálfir heldur ætla þeir að láta eitt af félögum Exista, Lýsingu, lána þeim fyrir kaupverðinu. Enda skulda þeir hundruði þúsunda milljóna samanber fréttir af lánveitingum KB banka til stærstu eigenda sinna.

Stuttu eftir hrunið mikla í oktober síðastliðnum tóku Bakkabræður hið verðmæta félag, Bakkavör, sem metið er á þúsundir milljóna króna, út úr Exista og gerðu að séreign sinni og nú á að taka einn ósvífnasta snúning sem sést hefur og taka Exista yfir í heild sinni á tvo aura per hlut og skilja alla hluthafana eftir í skítnum,“ segir Jón í tilkynningu sem hann sendi fjölmiðlum fyrir stuttu.

„Spyrja má af hverju þeir leggja svona mikið á sig til að komast yfir félag sem skuldar að minnsta 150 milljarða umfram eignir - það er félagið er álíka illa statt og Baugur sem var tekinn til gjaldþrotaskipta,“
segir Jón

Í tilkynningunni segir hann Exista hafa orðið gjaldþrota fyrir löngu síðan en samt sé eigið fé metið á hundruði milljarða króna. Þessar upplýsingar fær Jón úr ársreikningum Exista sem settar hafa verið saman af löggiltum endurskoðendum.

Í lok tilkynningarinnar vandar hann Bakkbræðrum ekki kveðjurnar.

„Græðgi þessara manna hefur eyðilagt orðstír heillar þjóðar. Heilbrigð skynsemi óskast.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.