ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Bubbi: „Ekki kjósa vinstristjórn Jóhönnu“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:43 › 18. apríl 2009
Bubbi Morthens á tónleikum sínum gegn íslensku krónunni við Austurvöll í október síðastliðnum.

Bubbi Morthens á tónleikum sínum gegn íslensku krónunni við Austurvöll í október síðastliðnum.

Bubbi Morthens kom mörgum hlustendum X-ins 977 í opna skjöldu í gær þegar hann lýsti því yfir í beinni útsendingu að hann muni að öllum líkindum kjósa Sjálfstæðisflokkinn í komandi kosningum. Þá hvetur hann alla til að kjósa ekki „vinstristjórn Jóhönnu Sigurðadóttur.“

Bubbi sem fyrir ekki svo alls löngu síðan hélt tónleika fyrir framan Seðlabankann með hljómsveit sinni Egó til þess að leggja sitt á vogarskálarnar í von um að flæma Davíð Oddsson úr Seðlabankanum. Þá hélt hann aðra tónleika í október á Austurvelli sérstaklega gegn íslensku krónunni og hefur áður lýst því yfir að vera gallharður stuðningsmaður upptöku evrunnar. Skemmst er þá að minnast þegar Bubbi lýsti því í fjölmiðlum að hafa nær tapað aleigunni á íslenska efnahagshruninu.

Ekki kjósa stjórn Jóhönnu
Á spjallsvæði heimasíðu sinnar, Bubbi.is, hvetur hann áhangendur sína til að kjósa ekki „vinstristjórn Jóhönnu“ og vísar þar til þess hve krónan hafi hrunið frá því Steingrímur J. og Jóhanna Sigurðardóttir tóku við stjórnartaumunum og skipuðu Norðmanninn Svein Harald Öygard sem seðlabankastjóra. Einn notandi spyr í kjölfarið hvort Bubbi ætli að „merkja sig fuglinum fyrir næsta vor“ með vísan í fálka Sjálfstæðisflokksins. Bubbi svarar um hæl: „Það eru aðrir valkostir en það.“

Sjálfstæðisflokkurinn eða Borgarahreyfingin
Nú rúmum tveimur vikum síðar virðist Bubbi hins vegar vera búinn að gera upp sinn hug. Atkvæði hans fer annað hvort til Sjálfstæðisflokksins eða Borgarahreyfingarinnar eins og hann viðurkenndi í samtali við útvarpsþáttinn Harmageddon á X-inu í gær. Hann hrósaði Sjálfstæðisflokknum fyrir að hafa tekist að styrkja krónuna eftir áramót og sagðist hafa fulla trú á því að flokkurinn muni gera það á nýjan leik, komist hann til valda, heimilunum í landinu til heilla.

„Krónan hefur bara fallið síðan ríkisstjórnin tók við,“ sagði Bubbi á X-inu í gær.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.