Breskur almenningur og bæjarfélög áttu stjarnfræðilega háar upphæðir á reikningum sínum í íslenskum bönkum við hrun.
Tugir breskra bæjarfélaga gætu átt von á að fá allt að 200 milljónir punda vegna innstæðna sinna í Heritable banka Landsbankans í Bretlandi. Samkvæmt nýrri skýrslu frá skiptastjórum bankans geta innstæðueigendur vænst þess að fá allt að 70 prósent innstæðna sinna endurgreiddar. Frá þessu greinir Times Online í kvöld.
Þetta eru fyrstu góðu fréttirnar, sem hluti þeirra 123 bresku bæjarfélaga sem áttu ríflega 920 milljónir punda á reikningum í Landsbankanum, Glitni og Kaupþingi, hafa fengið lengi. Ótti hafði verið að magnast meðal Breta um að innstæðurnar væru tapaðar.
Paul Carter, leiðtogi Kent-sýslu, sem átti 50 milljónir punda í íslenskum bönkum, sagði að búast mætti við fyrstu greiðslum frá Heritable innan nokkurra mánaða.
„Endurskoðunarfyrirtækið Ernst & Young hafa lagt fram viðamikla skýrslu þar sem segir að búast má við endurgreiðslu á 70 til 80 pensum á pundið,“ sagði Carter sem segir útkomuna svara þeim sem hafa gagnrýnt sýsluna fyrir að leggja peningana sína í íslenska banka. Tapið hefði verið mun meira ef Kent hefði haldið peningum sínum í hlutabréfum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun