ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Björgólfur vissi af styrknum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:48 › 18. apríl 2009
25 milljón króna styrkur Landsbankans til Sjálfstæðisflokksins var gefinn með vitund og vilja Björgólfs.

25 milljón króna styrkur Landsbankans til Sjálfstæðisflokksins var gefinn með vitund og vilja Björgólfs.

  • Sigurjón Árnason.

    Sigurjón Árnason.

Björgólfur Guðmundsson vissi af 25 milljón króna styrk Landsbankans til Sjálfstæðisflokksins árið 2006 að sögn Sigurjóns Árnasonar fyrrverandi bankastjóra.

Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 nú fyrir stundu sem tókst þó að fá það upp úr Sigurjóni sem að öðru leyti vildi ekki veita fréttastofunni viðtal á tröppunum heima hjá sér. Einungis að styrkurinn hafi verið veittur með vitund og vilja Björgólfs. Málið væri innanflokksmál Sjálfstæðisflokksins og hann vildi ekki blanda sér í það.

Réttilega er bent á það á Vísir.is að Sigurjón Árnason, maðurinn sem veitti styrkinn, og Geir Haarde, maðurinn sem axlaði ábyrgð á að veita honum viðtöku, eru miklir nágrannar við Granaskjólið í Vesturbænum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.