ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Atkvæði þitt kostar ríkið 900 krónur

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:22 › 18. apríl 2009
Það er ekki ódýrt að halda kosningar. Kostnaðurinn hleypur á hundruð milljóna.

Það er ekki ódýrt að halda kosningar. Kostnaðurinn hleypur á hundruð milljóna.

Hvert atkvæði, þeirra 228 þúsund einstaklinga sem eru á kjörskrá fyrir komandi alþingiskosningar, gæti kostað íslenska ríkið tæpar 900 krónur. Reiknað er með að kostnaður ríkisins vegna komandi kosninga nemi allt að 200 milljónum króna.

Að því er fram kemur í sunnudagsútgáfu Morgunblaðsins verða 251.000 kjörseðlar prentaðir og reiknast mönnum þar á bæ til að kostnaðurinn nemi að minnsta kosti 200 milljónum króna þegar allur kostnaður er talinn til.

Stærsti kostnaðarliðurinn við kosningar eru vegna launa starfsmanna sem nema hundruðum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.