Rúmlega fimm hundruð ökumenn voru stöðvaðir í Reykjavík á fimmtudagskvöld en aðgerðin var hluti af sérstöku átaki sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haldið úti gegn ölvunar- og fíkniefnaakstri undanfarnar vikur. Þrír þessara ökumanna reyndust ölvaðir og voru þeir handteknir.
Tveimur til viðbótar var gert að hætta akstri en þeir voru rétt undir viðmiðunarmörkum. Ökumenn tóku þessum afskiptum almennt mjög vel en öflug sveit lögreglumanna var á vettvangi og því gekk eftirlitið, sem stóð yfir í tvær klukkustundir, að mestu snuðrulaust fyrir sig.
Fyrrnefnt átak er unnið í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra en það kemur til viðbótar því öfluga umferðareftirliti sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu heldur jafnan úti. Hvergi verður slakað á í þeim efnum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna