Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í einbýlishúsi í Breiðholti síðdegis á fimmtudag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega þrjú hundruð kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar.
Lögreglan lagði einnig hald á fimmtán gróðurhúsalampa, rúmlega þrjú hundruð grömm af marijúana og tvö kíló af kannabislaufum. Karl á fertugsaldri var yfirheyrður í tengslum við rannsókn málsins.
Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr vill lögreglan minna á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál.
Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna