ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Vildu ekki þiggja gjaldfrjálsan útsendingartíma

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:04 › 17. apríl 2009
RÚV hættir við 10 mínútna gjaldfrjálsan útsendingartíma. Þöggun segir Borgarahreyfingin.

RÚV hættir við 10 mínútna gjaldfrjálsan útsendingartíma. Þöggun segir Borgarahreyfingin.

Vegna þess að meirihluti stjórnmálaflokkanna vildu ekki þiggja 10 mínútna gjaldfrjálsan útsendingartíma hjá Ríkissjónvarpinu hefur RÚV ákveðið að hætta við að útdeila öðrum minni framboðum þann tíma. Borgarahreyfingin gagnrýnir þessar aðgerðir harðlega og segir flokkakerfið þagga niður í nýjum framboðum.

Segir í tilkynningu að Borgarahreyfingin fordæmi þessa ólýðræðislegu ákvörðun og hefur hreyfingin sent menntamálaráðherra og útvarpsstjóra bréf vegna málsins þar sem þess er krafist að þau grípi í taumana.

„Rök Ríkisútvarpsins fyrir því að hætta við 10 mínútna gjaldfrjálsa útsendingu eru algerlega ólýðræðisleg. Ríkisútvarpið hætti við útsendinguna vegna þess að meirihluti stjórnmálaflokkanna vildi ekki notfæra sér gjaldfrjálsa útsendingu.“

„Þeir flokkar sem sitja á Alþingi og hafa veitt sjálfum sér rausnarlega úr sjóðum almennings geta með öðrum orðum afþakkað gjaldfrjálsa útsendingu fyrir eigin framboð og þannig komið í veg fyrir gjaldfrjálsa kynningu annarra framboða. Nýrra framboða sem ekki hafa í neina sjóði að ganga til að kynna stefnumál sín. Það er fullkomlega óboðlegt í samfélagi sem vill kenna sig við lýðræði að rótgrónir stjórnmálaflokkar, sem landsmenn vita vel hvað standa fyrir, geti keypt sér alla þá auglýsingu sem þá lystir og um leið komið í veg fyrir að raddir nýrra framboða heyrist,“ segir í tilkynningu Borgarahreyfingarinnar vegna málsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.