Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Svissnesk löggæsluyfirvöld eru í vanda vegna tvíbura, sem kenna hvorum öðrum um, um mörg hundruð stöðumælasektir sem annar hvor þeirra hefur fengið. Á síðasta ári fengu bræðurnir 29 sektir í bænum Winterhur á bíl sem þeir deila með hvor öðrum. Í gegnum árin nema sektirnar þó hundruðum.
Í hvert einasta skipti sem sektarmál þeirra hafa ratað fyrir dóm hafa þeir bent á hvorn annan og neitað sök. Lögreglan getur lítið gert og segir talsmaður hennar að það sé óþolandi að ekki sé hægt að draga menn til ábyrgðar. Þar sem þeir eru nákvæmlega eins í útliti er ekki hægt að leggja fyrir dóminn myndir sem náðst hafa af mönnunum.
Útlit er því fyrir að mennirnir geti haldið áfram að leggja bílnum án þess að hafa af því áhyggjur að þurfa að borga sekt.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu