„Það verður ekkert kosningakaffi og ekki tekið á móti neinum framlögum í kosningasjóð,“ segir Kristinn Hrafnsson blaðamaður léttur um framboð sitt til formanns Blaðamannafélags Íslands. Kjörið fer fram miðvikudaginn 20. apríl á aðalfundi félagsins en mótframbjóðandi Kristins er vinkona hans og fyrrverandi samstarfskona Þóra Kristín Ásgeirsdóttir.
Þóra, sem er núverandi varaformaður félagsins, er á sama máli og Kristinn en hún býst ekki við teljandi átökum í formannsslagnum. „Ég fagna framboði Kristins og þekki hann að góðu einu. Ég fagna því að tveir takist á um embættið svo að það okkar sem fær það að lokum hafi óskoraðan stuðning félagsmanna.“ Þóra vill að mörgu leyti ydda núverandi áherslumál félagsins. „Stundum finnst mér að félagið hafi mátt kveða fastar að orði en gert hefur verið. Ég tel þörf á breiðri skírskotun og samstöðu í stéttinni um það sem félagið tekur sér fyrir hendur.“
Kristinn býst einnig við því að kosningarbaráttan verði öllu siðprúðari en sú sem nú er háð fyrir komandi alþingiskosningar. „Það má búast við betri tilburðum heldur en í þeim sóðalega fúkyrðaflaumi sem er í landspólitíkinni.“
Nánar er talað við Kristin og Þóru í helgarblaði DV.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar
Bauð engum stjörnum