Klámmynd byggð á sjónvarpsþáttunum vinsælu um Jerry Seinfeld og félaga hans er í bígerð í Bandaríkjunum. Það er leikstjórinn Lee Roy Myers sem er hugmyndasmiðurinn að myndinni en hann hefur áður gert myndina Scrubs: A XXX Parody vinsæla, sem byggð er á samnefndum grínþáttum. Þetta kemur fram á vef The Sun.
Myndin á að heita Seinfeld: A XXX Parody en Parody þýðir á íslensku skopstæling eða skrumskæling. Tökur á myndinni hófust þann tíunda apríl og því nokkrar vikur eða mánuðir áður en hún verður gefin út.
Lee Roy Myers hefur mikla trú á leikurunum í myndinni en tekið skal fram að enginn þeirra leikara sem léku í sjónvarpsþáttunum sálugu mun leika í myndinni. „Vinnan mín virðist auðveld þegar ég fæ að vinna með svona ótrúlega hæfileikaríkum hópi, sem getur blandað saman samförum og húmor. Það verður bara ekki betra en það,“ segir leikstjórinn hugmyndaríki.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu