Seðlabanki Íslands ætlar að kanna áhrif evrópskrar efnahagssamvinnu og myntbandalags á efnahagsumhverfi Íslands. Þetta kom fram í máli Svein Harald Öygard, seðlabankastjóra á ársfundi bankans í dag.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, lýsti sérstakri ánægju með framtak bankans í ræðu sinni á ársfundinum.
„Ég vil lýsa sérstakri ánægju með það sem Seðlabankastjóri greindi frá í erindi sínu hér áðan, að fyrirhugað sé að hefja innan Seðlabankans skoðun á áhrifum evrópskrar efnahagssamvinnu og myntbandalags á efnhagsumhverfi okkar Íslendinga. Slík skoðun yrði mikilvægt innlegg inn í faglega umræðu um þessi mál.“
Jóhanna sagði að innganga í Evrópusambandið og upptaka Evru væru mikilvæg skref í átt til aukins trúverðugleika. Evrópusambandsaðild myndi gefa stjórnvöldum aukið efnahagslegt aðhald og setja skýr markmið með Maastricht skilmálunum. Þessi áhrif hefðu komið bersýnilega í ljós á sænskum fjármálamarkaði eftir að Svíar ákváðu að ganga í Evrópusambandið.
„Fyrir liggur að þjóðir sem ekki hafa tekið upp Evru, svo sem Danir, hafa notið aðstoðar Seðlabanka Evrópu og að bankinn hefur aðstoðað aðrar þjóðir svo sem Ungverja í þeirra erfiðu aðstæðum. Ég vil að samhliða aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði leitað samninga um hvort og þá hvernig Seðlabanki Evrópu gæti komið að því að halda hér gengi stöðugu til skemmri tíma, eða þar til unnt væri að taka upp Evru hér á landi. Í Evrópuskýrslunni sem kynnt var fyrr í dag eru kostir og gallar þessara leiða reifaðar. Ljóst er að hvers kyns samvinna við Seðlabanka Evrópu myndi auka trúverðugleika Seðlabanka Íslands og gera honum auðveldara að ná fram markmiðum sínum um stöðugleika,“ sagði Jóhanna í ræðu sinni á ársfundi Seðlabankans.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna