„Ég er að friðmælast við nágrannanna þannig að ég hef beðið þá sem eru að koma að vera prúðir og vera á rólegu nótunum,“ segir nornin Eva Hauksdóttir sem bauð öllum Íslendingum í partí heim til sín. Partýið hófst klukkan 20 og á að vera lokið klukkan 23.30. Ástæðan fyrir partístandinu er sú að grenitré sem var í garði Evu var hoggið niður án þess að hún væri höfð með í ráðum. Þetta sárnaði Evu og fór hún mikinn á bloggsíðu sinni í kjölfarið þar sem hún bauð fólki að hafa með sér hljóðfæri og Singstar.
Eva lýsti því á bloggi sínu þegar verktaki birtist henni að óvörum til að framfylgja vilja leynifundar húsfélagsins.„Ég reiddist alveg ofskaplega mikið en svo höfðu nágrannarnir skrifað mér bréf og ég reikna með að það verði farsæl ending á þessu. Ég reikna með því,“ segir Eva. Í kjölfar þess að tréð var hoggið niður skrifaði hún pistil á heimasíðu sína þar sem hún sagði meðal annars:
„Hér með býð ég öllum Íslendingum í partý heim til mín að Mávahlíð 39 á föstudagskvöldið frá kl 20-23:30. Takið með ykkur hljóðfæri, singstarkerfi og hvaðeina sem gæti orðið til skemmtunar. Takið einnig með ykkur gæludýr ef þið viljið. Ef einhvern langar að elda lyktsterkan mat mun ég með ánægju leyfa afnot af eldhúsinu.“
Aðspurð hvort einhverjir gesta séu með Singstar eða hljóðfærði meðferðis sagði Eva að þau væru á leiðinni. Annars býst hún við rólegri stemningu en gestir verða farnir heim fyrir miðnætti.
Eva segir að hún hafi reiðst alveg hrottalega þegar hún sá að verið var að falla tréð. „Mörgum finnst ég sjálfsagt hafa brugðist of hart við. Það sem gerist hjá mér er að ég er endalaust að berjast við einhverja valdníðslu og yfirgang. Svo þegar maður lendir í því í einkalífinu líka þá er eins og eitthvað snappi bara.“
Hvað sem því líður býst Eva við að málið fái farsælan endi og gerir ráð fyrir að hún muni tala við nágranna sína um helgina. Stemningin verður því væntanlega rólegri á heimili Evu að Mávahlíð 37 en fyrri skilaboð á bloggsíðu hennar gáfu til kynna.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun