Forsætisráðuneytið undirbýr tillögur um sameiningu verkefna og fækkun ráðuneyta sem hafa afskipti af fjármálamarkaði með einum eða öðrum hætti. Tillögurnar eru í anda skýrslunnar sem finnski sérfræðingurinn Kaarlo Jännäri hefur skilað stjórnvöldum.
Fram kom í ávarpi Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á ársfundi Seðlabankans í dag að
einnig verði sett á fót nefnd sem kanni nánar kosti og galla þess að auka samstarf milli Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins og eða sameina þessar tvær stofnanir.
„Í því starfi verði meðal annars metið hvernig megi stuðla að því að þessar stofnanir beiti eftirlitsheimildum sínum af fullum krafti. Þá verði því beint til viðskiptaráðherra að leggja sem allra fyrst fyrir ríkisstjórn frumvarp um breytingar á lögum um innistæðutryggingar, þar sem brugðist verði við afleiðingum bankahrunsins á stöðu núverandi sjóðs og þeim breytingum sem orðið hafa á regluumhverfi innistæðutrygginga í Evrópu fram til þessa. Jafnframt taki viðkomandi ráðuneyti virkan þátt í umræðum á Evrópuvísu um frekari endurskoðun innistæðutryggingakerfisins. Hér megum við engan tíma missa, hver vika og hver mánuður er mikilvægur. Hlutirnir gengu of hægt fyrstu mánuðina eftir hrunið en nú þurfum við að vinna hraðar og koma hlutunum í verk,“ sagði Jóhanna.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna