Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Bandarískur menntaskólakennari frá Ohio hefur sagt upp störfum eftir að upp komst að hann fór á strippstað með fjórum nemendum sínum. Kennarinn, sem er kona og er 47 ára, fór í föruneyti fjögurra nemanda sinna á aldrinum 17 til 18 ára á klúbbinn til að berja karkyns fatafellur augum.
Talsmaður skólans, Bill Solazzo, segir að kennarinn hafi orðið við beiðni stúlknanna eftir að þær báðu hana um að koma með sér. Kennarinn sagðist hafa fengið leyfi frá foreldrum stúlknanna en hún kenndi þeim meðal annars markaðsfræði.
Málið vakti hinsvegar hneykslan hjá siðanefnd skólans og fór það svo að hún sagði upp störfum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu