ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW

Með kíló af amfetamíni í skónum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:30 › 17. apríl 2009
Maðurinn, sem er pólskur, var að koma frá Danmörku.

Maðurinn, sem er pólskur, var að koma frá Danmörku. Mynd DV

Pólskur karlmaður um þrítugt var handtekinn í Leifsstöð í gærkvöldi með um eitt kíló af amfetamíni sem var falið í þykkbotna skóm. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Maðurinn var að koma til landsins frá Kaupmannahöfn.

Samkvæmt frétt Stöðvar 2 liggur ekki fyrir hvort efnin hafi fundist við reglubundið eftirlit eða hvort vísbendingar hafi borist erlendis frá. Maðurinn var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.