ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Kaupþingsdeilan í Þýskalandi leyst

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:49 › 17. apríl 2009
Jóhanna sagði að deilan væri leyst.

Jóhanna sagði að deilan væri leyst. Mynd DV

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á ársfundi Seðlabankans í dag að Kaupþingsmálið í Þýskalandi sé leyst. „Hins vegar liggur nú fyrir, og gaman að geta sagt frá því hér í dag, að eignir Kaupþings eru nægilegar til þess að gera upp við þýska innistæðueigendur. Mikilvægum áfanga í uppgjöri og sátt gagnvart aþjóðasamfélaginu er þar með náð,” sagði Jóhanna.

Jóhanna ítrekaði einnig vilja sinn á fundinum að sótt yrði um aðild að Evrópusambandinu. Hún sagðist fullviss um að það yrði gæfuspor.

„Ég hef ekki farið leynt með þá skoðun mína að eitt af forgangsverkefnum næstu ríkisstjórnar á að vera umsókn um aðild að Evrópusambandinu og upptaka Evru. Niðurstaða aðildarviðræðna mun leiða í ljós svart á hvítu þau tækifæri sem felast í aðild að Evrópusambandinu. Þá niðurstöðu eigum við óhrædd að leggja í dóm þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu,” sagði Jóhanna.

Forsætisráðherra boðaði fækkun ráðuneyta og að þegar yrði á vegum forsætisráðuneytisins undirbúnar tillögur um að fækka þeim ráðuneytum sem hafa með löggjöf á sviði fjármálamarkaðar að gera og sem fyrst eftir kosningar sett á fót nefnd sem kanni nánar kosti og galla þess að auka samstarf milli Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins og eða sameina þessar tvær stofnanir. Í því starfi verði meðal annars metið hvernig megi stuðla að því að þessar stofnanir beiti eftirlitsheimildum sínum af fullum krafti.

Viðbót kl. 18.09

Í tilkynningu frá skilanefnd Kaupþings kemur fram að um 30.000 sparifjáreigendur muni fá innistæðar sínar í netbankanum Edge greiddar. Upphæðin sem um ræðir er um það bil 330 milljónir evra eða rúmlega 55 milljarðar íslenskra króna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.