Jóhanna Sigurðardóttir: „Eignir Kaupþings eru nægilegar til þess að gera upp við þýska innistæðueigendur. Mikilvægum áfanga í uppgjöri og sátt gagnvart aþjóðasamfélaginu er þar með náð.“
Jóhanna Sigurðardóttir sagði á ársfundi Seðlabanka Íslands í dag að halli ríkissjóðs verði um 150 milljarðar króna í lok ársins. Hún upplýsti jafnframt að eignir Kaupþings dugi fyrir uppgjöri við þýska innistæðueigendur.
„Þrátt fyrir að skuldir ríkissjóðs hafi aukist í kjölfar bankahrunsins verður stærstur hluti þeirra gagnvart innlendum aðilum í íslenskum krónum. Heildarskuldir ríkissjóðs verða líklega nærri 1.100 milljörðum í árslok 2009. Á móti þessum skuldum koma að sjálfsögðu verulegar eignir. Eignarhlutir ríkissjóðs í fyrirtækjum er metinn á 580 milljarða við árslok 2009. Auk þess mun ríkissjóður eiga um 355 milljarða í kröfum og handbæru fé.“
Hrein staða ríkissjóðs verður því aðeins neikvæð um 150 milljarða við árslok 2009 ef áætlunin gengur eftir, sem er um 10% af landsframleiðslu. „Vert að hafa í huga að brúttó skuldirnar verða háar vegna ICESAVE til skamms tíma og vaxtagreiðslur því háar. Hins vegar liggur nú fyrir, og gaman að geta sagt frá því hér í dag, að eignir Kaupþings eru nægilegar til þess að gera upp við þýska innistæðueigendur. Mikilvægum áfanga í uppgjöri og sátt gagnvart aþjóðasamfélaginu er þar með náð,“ sagði Jóhanna.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun