ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Hrökk upp við trúarhita Herberts

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:33 › 17. apríl 2009
Svala segir að það hafi verið skelfilega óþægilegt að vakna á næturnar með Herbert yfir sér að signa sig.

Svala segir að það hafi verið skelfilega óþægilegt að vakna á næturnar með Herbert yfir sér að signa sig. Mynd Bragi Þór Jósefsson

Svala Guðbjörg Jóhannesdóttir, fyrrverandi eiginkona Herberts Guðmundssonar tónlistarmanns, segir það hafa haft mikil og þrúgandi áhrif á heimilið þegar Herbert frelsaðist til kristinnar trúar. Það gerðist eftir að Herbert fór í meðferð og kynntist AA-samtökunum. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Vikunnar.

Svala segir að eftir þetta hafi trúin átt hug Herberts allan og bænahópur farið að venja komur sínar á heimilið. Hún segir að það hafi verið „skelfilega óþægilegt að vakna upp við að Herbert stóð við rúmið að þylja bænir yfir mér og signa mig. Hann sagði við mig að ég „gengi með þeim dökka“ þar sem ég væri ekki jafnáköf í trúnni og hann. Mér leið stundum eins og ég væri stödd í miðri hryllingsmynd.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.