ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Hústökumál enn í rannsókn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:58 › 17. apríl 2009
Hópur aðgerðarsinna lagði undir sig húsnæðið að Vatnsstíg 7.

Hópur aðgerðarsinna lagði undir sig húsnæðið að Vatnsstíg 7. Myndir Heiða Helgadóttir

Ekki hefur verið tekin ákvörðun hvort einhver verði ákærður í tengslum við hústökumálið á Vatnsstíg. Jón H.B. Snorrason, saksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við DV að eigandi hússins hafi lagt fram kæru vegna málsins. Málið sé í rannsókn en ekki liggi fyrir hvort einhver verði ákærður.

Fimmtán karlar og sjö konur voru handteknar í aðgerðum lögreglu á Vatnsstíg 4 á miðvikudag. Húsið hafði staðið autt um langt skeið en eigendur hússins hugðust reisa þar verslunarhúsnæði. Hústökufólkið hafði hinsvegar þau áform að stunda listir í húsinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.