ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Pyntaður til að játa

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:45 › 17. apríl 2009
Kasab í dómssal. Hann segist hafa verið pyntaður til að játa. Hann var sautján ára þegar árásirnar voru gerðar.

Kasab í dómssal. Hann segist hafa verið pyntaður til að játa. Hann var sautján ára þegar árásirnar voru gerðar.

  • 166 létust í árásunum.

    166 létust í árásunum.

Byssumaðurinn, sem lifði af hryðjuverkaárásirnar í Mumbai í nóvember, segir að hann hafi mátt þola grófar pyntingar af lögreglu. Þess vegna hafi hann játað aðild sína að málinu. Allir hinir hryðjuverkamennirnir sem voru handteknir voru skotnir til bana af lögreglu. 166 létust í árásunum.

Réttarhöld yfir manninum, sem heitir Mohammad Ajmal Kasab, eru hafin en í dag dró maðurinn játningu sína til baka. Samkvæmt ákæru kom Kasab til Indlands með hraðbáti frá Pakistan til að taka þátt í árásunum. Saksóknarar telja að pakistanska leyniþjónustan hafi skipulagt árásirnar.

„Við höfum sönnungargögn um að þetta hafi verið samsæri og hrein og klár stríðsárás sem miðaði af því að ná yfirtökum yfir Kasmír-héraðinu. Þetta var mjög vel skipulögð árás af pakistönsku leyniþjónustunni,“ sagði saksóknarinn Ujjwal Nikam í dómssal í dag. Hvað sem því líður hafa Pakistanar ítrekað neitað aðild að málinu.

Kasab gæti átt yfir höfði sér dauðadóm vegna aðildar sinnar að málinu en dómari neitaði beiðni verjanda hans, um að hann skildi dæmdur í unglingaréttir þar sem hann var einungis sautján ára þegar árásirnar voru gerðar.

Málið þykir stórt og umfangsmikið en réttarhöldin munu líklega dragast á langinn vegna þess.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.