ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Hreinsa upp eftir Kaupþing

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:02 › 17. apríl 2009
Berbatov og Vidic vilja bjarga Christie-spítalanum sem er leiðandi á sviði krabbameinsrannsókna.

Berbatov og Vidic vilja bjarga Christie-spítalanum sem er leiðandi á sviði krabbameinsrannsókna.

Um sextíu þúsund manns hafa skrifað nafn sitt á undirskriftalista á vegum dagblaðsins Manchester Evening News til að bjarga hinum heimsfræga Christie-spítala í Manchester. Spítalinn tapaði 6,5 milljónum punda, eða rétt rúmlega einum milljarði íslenskra króna, í bankahruninu. Stærstur hluti fjárins kom frá styrktaraðilum spítalans í gegnum góðgerðarsöfnun og var fjárfest í dótturfélagi Kaupþings í Bretlandi, Kaupþing Singer and Friedlander.

Meðal þeirra sem skrifað hafa undir eru Manchester United-stjörnurnar Nemanja Vidic og Dimitar Berbatov ásamt þjálfara Manchester City, Mark Hughes.

„Krabbamein hefur áhrif á svo margt fólk að það er mikilvægt að við styðjum Christie-spítalann svo hann fái peninginn aftur,“ segir Berbatov í samtali við Manchester Evening News en málið hefur vakið usla meðal íbúa Manchester-borgar enda er Christie-spítalinn leiðandi á sviði krabbameinsrannsókna.

Rúnar Ívarsson, varaformaður stuðningsmannaklúbbs Manchester United á Íslandi, skilur vel reiði Vidics og Berbatovs út í íslenska bankann. „Það er ekkert óeðlilegt við það að menn séu argir. Ég held ekki að fólk á Íslandi sé ofboðslega sátt við bankana og ég geri ráð fyrir að þessir úti séu alveg jafn ósáttir.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.