Öfugmæli. Sjálfstæðismenn vildu meina að þeim væri best treystandi til að stjórna. Annað kom á daginn.
Traust efnahagsstjórn var meðal helstu kosningaloforða Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu alþingiskosningar og var mikið gert úr því í auglýsingum vorið 2007. Framsóknarflokkurinn ítrekaði að íslenska efnahagsundrið væri engin tilviljun og beindi því til kjósenda að leiðin til áframhaldandi viðskiptatækifæra væri að kjósa Framsókn. Samfylkingin hét kjósendum sínum því að nýju jafnvægi yrði náð í efnahagsmálum. DV rifjar upp auglýsingar flokkanna frá síðustu kosningum.
Ísland er þriðja aðgengilegasta landið fyrir erlenda fjárfesta samkvæmt úttekt viðskiptatímaritsins Forbes,“ sagði í heilsíðuauglýsingum Framsóknarflokksins í dagblöðum fyrir alþingiskosningarnar 2007. Flokkurinn hafði þá verið í ríkisstjórn í tólf ár og hreykti sér mjög af íslenska efnahagsundrinu sem hann taldi að stórum hluta sér að þakka.
Góðærið stóð sem hæst þegar síðast var kosið til Alþingis. Sjálfstæðisflokkurinn lagði einnig ríka áherslu á efnahagsmálin þegar kom að kosningaloforðum og í auglýsingum mátti lesa slagorð á borð við „Traust efnahagsstjórn“ og kjósendur voru minntir á að hvergi væri betra að búa en einmitt á Íslandi.
Í stefnuskrá Samfylkingar fyrir síðustu kosningar sagði að jafnvægi yrði tryggt í hagkerfinu enda væri það forsenda þess að vextir og verðbólga lækkuðu og gengisstöðugleiki ykist. Staðreyndin er sú að vextir og verðbólga náðu sögulegu hámarki, frá því fyrir þjóðarsátt, eftir að Samfylkingin tók við stjórnartaumunum og gengismál hafa verið í gríðarlegu ójafnvægi.
Ítarlega er fjallað um málið í helgarblaði DV.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs