ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

80 milljónir í yfirstjórn Seðlabankans

Jóhann Hauksson johannh@dv.is
16:18 › 17. apríl 2009
Seðlabanki Íslands: Ársfundur bankans stendur yfir. Bankaráð og bankastjórn fékk samtals 80 milljónir króna í laun í fyrra.

Seðlabanki Íslands: Ársfundur bankans stendur yfir. Bankaráð og bankastjórn fékk samtals 80 milljónir króna í laun í fyrra.

Heildarlaun bankastjórnar og bankaráðs Seðlabanka Íslands námu 80 milljónum króna í fyrra samkvæmt nýbirtri ársskýrslu bankans.
Laun Davíðs Oddssonar formanns bankastjórnarinnar í fyrra námu 25,3 milljónum króna eða sem nemur 2,1 milljón króna á mánuði. Laun seðlabankastjóranna Eiríks Guðnasonar og Ingimundar Friðrikssonar námu tæpum 20 milljónum eða sem nemur tæpri 1,7 milljónum króna á mánuði.

Þóknun Halldórs Blöndal, formanns bankaráðs Seðlabankans, nam 3,4 milljónum króna í fyrra en tólf aðrir bankaráðsmenn og varamenn skiptu með sér 11,5 milljónum króna.
Ársfundur Seðlabanka Íslands er haldinn í dag, en þar er gerð grein fyrir framvindu efnahagsmála í fyrra sem og peningastefnu bankans. Jafnframt því er ársreikningur bankans lagður fram.

Formaður bankaráðs, formaður bankastjórnar Seðlabankans og forsætisráðherra ávarpa ársfundinn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.