Barack Obama hefur stækkað bandarísku forsetafjölskylduna um einn eftir að hann kynnti þarlenda fjölmiðla fyrir hundinum Bo. Mikil eftirvænting hefur ríkt í kringum hundinn sem Obama lofaði dætrum sínum Maliu og Söshu, þegar hann var í kosningabaráttunni.
Eftir vandlega íhugun varð lítill, svartur, þriggja mánaða gamall portúgalskur vatnahvolpur fyrir valinu (e. Portugese water dog)
Sérfræðingar segja þessa tegund hunda gríðarlega orkumikla og duglega auk þess sem feldur þeirra þykir ákjósanlegur fyrir fólk með ofnæmi líkt og tíu ára dóttir Obama, Malia, þjáist af.
Á meðfylgjandi mynd sést valdamesti maður í veröldinni bregða á leik með Bo, og skokkar niður einn af göngum Hvíta hússins í fylgd nýja besta vinar síns.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
