Ungur maður bar eld að sér eftir að hafa hellt á sig bensíni. Sagðist hann hafa gert það sér til gamans.
Lögregla og sjúkralið var kallað að verslun Krónunnar á Selfossi aðfaranótt laugardags vegna manns sem eldur hafði komist í. Þegar lögregla kom á staðinn var enginn eldur sjáanlegur en í ljós kom að ungur maður á 19 ári hafði hellt bensíni í fatnað sinn og borið eld að. Félagi hans var til staðar með slökkvitæki og slökkti eldinn.
Maðurinn útskýrði tiltækið með þeim hætti að hann hefði gert þetta sér til gamans þar sem svo leiðinlegt væri á Selfossi. Ungi maðurinn hlaut ekki skaða af en hann hafði borið vaselín á fætur sína til að fyrirbyggja bruna.
Aðfaranótt annars í páskum var ráðist á mann og bifreið hans utan við skemmtistaðinn 800 bar á Selfossi. Maðurinn var sleginn tvö högg í andlitið en hlaut minni háttar meiðsl. Þeir sem að árásinni stóðu slógu einnig í bifreið mannsins og dælduðu þak hennar. Árásarþolin kærði atvikið og er málið í rannsókn.





Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“