Björn segir að það að tengja REI-málið við Sjálfstæðisflokkinn byggist annað hvort á fáfræði eða óvild í garð flokksins nema hvort tveggja sé og undrast tengingu ofurstyrkjamálsins við REI-málið.
Björn Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrum ráðherra, segir að Sjálfstæðisflokkurinn sé "leiksoppur" í ofurstyrkjamálinu en ekki gerandi. Hann segir málið "stærra og alvarlegra en svo, að það verði afgreitt á þann einfalda hátt, að athygli sé beint að öðrum en þeim, sem áttu hlut að því".
Björn virðist af bloggskrifum hans að dæma ósáttur við að athyglin beinist að Sjálfstæðisflokknum en ekki aðeins þeim sem söfnuðu styrkjunum, fyrir Sjálfstæðisflokkinn. "Það eru engin „öfl“ að gera neitt í þessu máli. Þeir, sem að því stóðu, geta ekki skotið sér á bakvið aðra," skrifar Björn og gagnrýnir fréttaflutning eftir að Þorsteinn M. Jónsson, fyrrverandi varastjórnarformaður FL Groups, og Steinþór Gunnarsson, þáverandi framkvæmdastjóri verðbréfasviðs Landsbanka, greindu frá því að þeir hefðu aflað styrkjanna, að beiðni Guðlaugs Þórs.
"Fréttir benda til að enn verði haldið lífi í umræðum um ofurstyrkina. Eigi að komast til botns í málinu verður að beina athygli að kjarna þess. Líta ber á alla stjórnmálaflokkana en ekki aðeins Sjálfstæðisflokkinn, sem er leiksoppur, af því einstaklingar innan hans eru upphafsmenn ofurstyrkjanna. Þótt fréttamenn átti sig ekki á því, ættu stjórnmálafræðingar að gera það. Spurning er, hvort svo sé, ef þeir geta ekki ýtt flokkspólitískum sjónarmiðum sínum til hliðar. Um það má efast, eins og þessi frétt á ruv.is 12. apríl, páskadag, sýnir: „Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, hafnar því að deilunni um háa styrki FL-Group og Landsbankans til Sjálfstæðisflokksins sé lokið. Kjósendur hljóti að vilja vita hvort styrkurinn tengist þeim ákvörðunum sem teknar voru um REI næstu mánuði á eftir."
Björn segist undrast "að Gunnar Helgi skuli ekki í þessum orðum sínum sýna meiri nákvæmni en að líta á Sjálfstæðisflokkinn sem geranda í REI-málinu. Þar eins og varðandi ofurstyrkina voru einstaklingar innan flokksins, sem fóru offari. Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna klofnaði vegna REI-málsins. Meirihlutinn lagðist gegn framgangi þess. Þingflokkur sjálfstæðismanna og miðstjórn Sjálfstæðiflokksins leggst gegn ofurstyrkjunum og ákveðið hefur verið að endurgreiða þá," segir Björn og bætir við. "Að prófessor í stjórnmálafræði skuli vilja kenna REI-málið við Sjálfstæðisflokkinn byggist annað hvort á fáfræði eða óvild í garð flokksins, nema hvoru tveggja sé. Þar er ekki um fræðilega ályktun að ræða."





Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“
Landlæknir vill fjarlægja alla PIP brjóstapúða