ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.0° 2m/s E

Tuttugu saknað eftir að skip sökk

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:35 › 9. mars 2009
Tuttugu er saknað en sex hefur verið bjargað. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Tuttugu er saknað en sex hefur verið bjargað. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd Photos

Tuttugu er saknað eftir að flutningaskip sökk undan ströndum Egyptalands í morgun. Samkvæmt frétt af vef Reuters hvolfdist skipið í Rauðahafi nálægt hafnarborginni Safaga. Sex úr áhöfn skipsins hefur verið bjargað.

Talið er að flestir þeirra sem voru um borð hafi verið frá Pakistan, Súdan og Indlandi. Það var að flytja gler frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum til Egyptalands.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.